Forvitnin að drepa þig???

Da Skvis frussar :Þ

25.12.2006 02:16:04 / daskvis

Jól og alles

ætla ekkert að skrifa mikið,,, aðalega bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla og koma á framfæri þökkum fyrir okkur

Kv Dagný

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 17:19:14 / daskvis

styttist

Jæja,, það styttist í að ég eigi ammæli og verði bara kvart aldar gömul,,jibbý. Ég og kallinn erum að fara á hótel og verðum alla helgina bara að chilla saman á afmælisdeginum og kannski sletta smá úr klaufunum á laugardeginum og mig hlakkar ekkert smá mikið til.

Annars er nú bara allt gott að frétta,, matarbindindið gengur ekkert svakalega vel,, enda var ég að baka um síðustu helgi,, og ég get náttúrulega ekki bakað og ekki borðað kökurnar,, þannig að ég varð að fá mér :) Ég reyni samt eftir fremsta megni að forðast það sem ég veit að ég get og má ekki borða,,eins og pizzu,,ARGH!!!

Er að fara á morgun með Ásdísi í laufabrauðsbakstur í skólanum hennar,, en það kemur í staðinn fyrir jólaföndrið sem hefur alltaf verið árlegt. Þetta verður bara smá off tími fyrir okkur saman.

Elva Dís er orðin mjög fær í að rífa kjaft (skil ekkert í þessu,, veit ekkert hvaða dna er í henni). t.d. þá vorum við hjá múttu um daginn og hún vildi ekki koma heim,, og þegar ég var búin að suða smá í henni þá sagði hún bara hátt og snjallt,,Hættu að tala svona við mig,, ég náttúrulega sprakk úr hlátri og mamma og pabbi áttu bágt með að gera það ekki líka,,heheh.

Valdi greyið vinnur og vinnur bara, enda að fara að koma jól, en ég reyni að vera góð og létta honum lífið á meðan hann er heima hjá okkur :)

Já ég er að fara í blóðprufu á morgun fyrir kviðarholsspeglunina sem ég á að fara í á næsta fimmtudag,, og hlakka ekki til,, hvorki prufunnar né speglunarinnar.

Oj já,, við erum öll að fara til spánar næsta sumar í tilefni af 50 ára afmæli mömmu,, þannig að það verður geggjað gaman,,, en á eftir að skrifa meira um það bara þegar nær dregur.

Allavegana,, þetta er nóg í bili,,, bið að heilsa ):





» 2 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 21:33:51 / daskvis

update !!!!

jæja,, er ekki kominn tími á smá update :)

Valdi er alltaf að vinna alveg á fullu,, nánast öll kvöld og allt,, þannig að ég er ein heima  nánast öll kvöld. Vonandi fer þetta eitthvað að minka hjá honum því að mig er farið að langa að hafa hann hjá mér :)

Ásdís er bara alltaf á fullu í skólanum, fimleikunum og KFUM&K. Hún er að standa sig rosalega vel í skólanum,, búin að fara í tvö stærðfræðipróf og fékk 9,8 í öðru þeirra og 9,7 í hinu,, sem segir mér það bara að hérna er lítill stærðfræðisnillingur á ferð og mamman alveg að rifna úr stolti :o Hún tók þátt um daginn í að gera svona jól í skókassa með KFUM&K og fannst það bara rosalega gaman,, og ekki skemmdi fyrir að það kom mynd af henni í víkurfréttum,,hehe. Hún er alveg staðráðin í að gera þetta aftur. Já jólasýningin hjá fimleikafélaginu er svo 9.dec,, þannig að endilega allir sem geta eiga endilega að koma og sjá,, þetta er alltaf svo gaman. Hún er alveg æst í það að fá að sýna mér dansinn sem þau eru með,, en ég vil ekki sjá hann fyrr en á sýningunni. Hún er 3 sinnum í viku á æfingum og það eiga eftir að bætast við ein eða tvær æfingar við vikuplanið núna þar sem það er farið að styttast í sýninguna.
Smá svona gullkorn,, svona sem þessum blessuðu börnum dettur í hug að segja,, þá sagði Ásdís við mig um daginn að henni hafi verið svo illt í hálsinum og var svo vont þegar hún kyngdi,, það var eins og hún hafi verið að kyngja kokinu á sér,,,bwahahaha ég náttúrulega hló alveg eins og brjálæðingur því að hún var að meina að hún væri með kökk í hálsinum,, en að segja,, kyngja kokinu,,hehe,, ég alveg sprakk.

Elva Dís er byrjuð alveg á leikskólanum frá 8-5,, þó svo að það sé misjafnt hvenær ég fer með hana og sæki hana :) tými bara ekki að hafa hana þarna allann daginn þar sem ég er heima hvort sem er,, en jú það er alveg ágætt svona þegar maður þarf að gera eitthvað eins og fara til lækna (sem ég er búin að gera mikið af undanfarið,,,sjá neðar)
Hún er alveg farin að tala á billjón og er rosalega mikið í þykjustu leikjum (heldur ung finnst mér,, en þetta er soddans undrabarn), hún tekur t.d. nefið af manni og hendir því fram á gang,, nú svo ef þú biður um að fá nefið til baka, þá hleypur hún fram til að sækja það,,hún er svo sniðug,,heheh. Hún er reyndar búin að vera alveg helling veik því að hún nær sér í allar pestir sem eru í gangi núna,,, t.d. þá fékk hún 3 sinnum hita frá 1-8 nóv,,, og það var náttúrulega gott að vera bara með hana heima,, en pirrandi fyrir hana greyið.

Ég er búin að vera á fullu hjá læknum undanfarið,, þannig að það er eiginlega bara gott að ég sé ekki farin að vinna neitt. Það sem ég er búin að gera síðan Elva fór allann daginn í leikskólann er alveg helling. Búin að fara til tveggja meltingasérfræðinga, búin að fera í magaspeglun, nýrna/gall/lifur og bris ómskoðun, ristilspeglun og ferð til ofnæmislæknis. Það er nú eiginlega ekkert komið í ljós,, nema það að ég er með alveg súper viðkvæmann ristil,, sem útskyrir alla ristilkrampana og svo voru að bætast við 5 ofnæmi hjá mér,, mjólk, hafrar, hveiti, rúg og egg. Ég á að hætta að borða allt þetta í allavegana ár,, en má prufa að borða egg eftir 3 vikur til að sjá hvort að ég þoli það. En við það að ég er með þetta ofnæmi,, þá skýrir það verkina sem ég er alltaf með á hinum stöðunum í maganum,, því að öll líffærin á mér bólgna upp og veldur þ.a.l. þessum verkjum. Ég er núna að bíða eftir að komast til sjúkra þjálfara til að láta skoða á mér bakið,,, því að ég er alltaf að drepast í því og er líklega með klemmda taug eða eitthvað solleis sem leiðir niður í vinstri fótinn,, þannig að ég er hoppandi hérna um íbúðina á nóttunni því að ég get lítið sofið fyrir verkjum. Og ég er líka að bíða eftir að komast í kviðarholsspeglun, ætla að vona að það verði fyrir áramót því að ég er komin með alveg rúmlega afsláttarkort núna. Þannig að það er alveg nóg að gera hjá me´r við það að vera ,,bara,, heima.
En nóg með þessa sjúkrasögu mína. Ég er búin að ákveða það,, að fyrst ég er ekki komin með neina almennilega vinnu þá ætla ég að skella mér í skólann eftir áramót,, já ég ætla að gera mig heimkomna í FS,, ef mar kemst inn þ.e.a.s. . Ég fór þarna um daginn að sækja um,, þá er þetta orðið svo breytt að ég rataði ekki neitt,, byrjaði að ég ætlaði að fara inn,, þá bara var ekki hurð þarna sem hún var áður,, ég þakkaði bara fyrir það að það sá mig enginn,,hehehe. Þannig að það er ekki nóg með það að mar þarf að fara að hafa sig alla við að reyna að koma sér inn í skólalíf aftur,, heldur þarf mar að reyna að rata um hann líka,, shit.

En jæja,, nenni ekki að skrifa mikið meira,,,,bið að heilsa ykkur (flestum) og hafið það gott :) 

Já og ef það er ekki til of mikils ætlast,,, viljiði þá ekki kvitta fyrir ykkur líka,, því það eru alltaf helling af heimsóknum hingað á dag,, en enginn kvittar.:haha:

» 8 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 10:21:27 / daskvis

kominn tími á nýtt blogg

Jæja,, það er alltaf nóg að gera hér á bæ.
Ásdís komst loksins inn í fimleikana eftir að hafa verið rúmlega mánuð á biðlista og er hún á æfingum þrisvar í viku og finnst það æðislegt. Hún var að keppa í fimleikum á Mögguóti (sem er innanfélagsmót), núna á laugardaginn og stóð sig alveg mjög vel (og alveg glæsilega miðað við að vera bara búin að vera núna að æfa í rúmar tvær vikur )og að því loknu fengu allar stelpurnar verðlaunapening. Þannig að hún er að gera það gott bæði í fimleikunum og í skólanum því hún er búin að fá tvisvar 9,8 í stærðfræði og er búin að fá mjög góðar umsagnir í skólanum.:haha:
Elva Dís er byrjuð í leikskóla. Ég er búin að vera með hana í aðlögun en svo byrjaði hún alveg á síðasta fimmtudag. Þannig að hún er í leikskólanum frá 8-5 og það er alveg skelfilega leiðinlegt að hafa hana svona lengi,, allavegana á meðan ég er ennþá heima. En þetta gengur bara fínt,, ég bara fer með hana í leikskólann og hún kyssir mig bara og segir bless,, henni er alveg sama að ég sé að fara,,enda örugglega guðs lifandi fegin að lostna við mig þar sem ég er búin að vera alltaf með henni síðustu tvö árin. Hún átti tíma í gær hjá tannlækni til að láta laga tennurnar og vorum við öll orðin rosalega spennt, nema hvað,, þá allt í einu klukkutíma áður en að við áttum að mæta, þá segir konan mér að það sé búið að fresta tímanum hennar til 30okt,, já og ég skal segja ykkur að mín var sko ekki sátt.:^) En jæja,, það þýðir ekki að vera fúl yfir því endalaust,, það er nokkuð ljóst, og hún kemst í þetta á endanum.
Valdi er alltaf á fullu að vinna þessi elska og alveg nóg að gera hjá honum, og það sko vottar fyrir smá öfund hérna á bæ með það að hann sé actually alltaf að gera eitthvað og solleis á meðan ég er bara heima. En já ég er ennþá bara heima og er ekki búin að finna neina vinnu. Það er bara nánast engin vinna í boði nema vinnur sem eru 2-2-3 eða kvöld og helgar,, og solleis vinnu vil ég ekki og ég vil ekki vinna rauðadaga því að þá lendir mar alltar í veseni með að redda pössun og solleis og ég nenni ekki að standa í því,, það er nú nógu erfitt að finna barnapössun svo mar fari nú ekki að gera í því að reyna. Já og svo hellti ég niður á fína lyklaborðið mitt,, við tókum það svo í sundur og þrifum það vel og solleis og ég skal segja ykkur að ég hef aldrei á ævinni séð eins flókið lykjaborð,, fyrir utan það að það eru 17 skrúfur sem þarf að losa fyrst, svo aðrar 13 og svo loksins aðrar 17,, sem er náttúrulega bara rugl,,, en við létum okkur samt hafa það. Lyklaborðið skánaði nú ekkert og ég gerði mér bara lítið fyrir og sullaði yfir það aftur morguninn eftir:$ Valdi hló nú bara og harðneitaði að láta mig fá sitt ,, þó svo það hafi nú endað á því. Hann er svo mikil elska:D Annars er ég bara í því að þrífa hérna á daginn og solleis, þó svo að það fer að koma að því að ég geti ekki gert meira,, en þá held ég að háaloftið verði bara fyrir valinu,, þannig að það er samt ekki eins og mar sitji auðum höndum hérna í atvinnuleysinu.
En jæja,, ég held að þetta sé komið gott í bili og ætla að reyna að láta ekki líða svona langann tíma þangað til ég skrifa eitthvað næst.,,,,, Hastala

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 13:50:08 / daskvis

Afmæli

Jæja,, þá á litla dúllan mín afmæli í dag,,, hún er orðin tveggja ára. Það er alveg furðulegt hvað tíminn er fljótur að líða,,en þessi tvö ár hafa verið bara bestu ár lífs míns held ég. Búin að fá að vera með henni heima mest allann tímann og það er alveg ómetanlegt og ég er staðráðin í því að þegar hópnum fjölgar meira hjá okkur, þá geri ég þetta hiklaust aftur. Og að vera með fallegu börnin mín og besta mann í heimi,, það er bara alveg ólýsanleg tilfinning.
Við héldum upp á afmælið hennar á laugardaginn og það var bara æðislegt, hún sagði bara allann tímann,, ammæli, gaman og pakka,,ehheh,, algjör dúlla. hún var í þvílíkum prinsessukjól og var bara algjört æði. Valdi náði góðum myndum af henni og ég setti 3 af þeim inn á netið á http://elvadis.photoape.com alveg æðislegar myndir. Hún fékk alveg fullt af fallegum og nytsamlegum gjöfum þannig að takk allir :) Hey já,, svo var mynd af henni í víkurfréttum,, afmæliskveðja frá Guðnýju og Róbert ekkert smá sætt.

Allavegana héðan er allt gott að frétta og alveg nóg að gera. Elva fer að byrja í leikskólanum núna 2 okt . Svo fer hún í tannaðgerðina 16 okt og ég hlakka mikið til.
Ég er sjálf að fara til meltingasérfræðings og ristildót eitthvað núna 10 okt. Er nefnilega búin að tala við einn sérfræðing og var send í magaspeglun og það kom ekkert út úr því meira en það að ég er með of lágt b12 og er því á töflum við því. En hinn á víst að senda mig í ristilspeglun og solleis skemmtilegheit til þess að það sé hægt að fá einhvern botn í þetta allt saman.
Ásdís er bara á fullu í skólanum og er alveg rosalega dugleg. Hún fór í könnunarpróf í stærðfræði og fékk 9.8 í því og ég er alveg rosalega stolt af henni. Við náðum ekki að skrá hana í fimleika á réttum tíma og er hún því á biðlista eftir því að komast inn. Hún er líka byrjuð í kórnum og ætlar svo líka að prufa að fara í KFUMogK og sjá hvernig sér líkar það.
Valdi er bara á fullu í vinnunni,, alltaf brjálað að gera hjá honum. Svo núna 1 okt þá er hann að fara að stunt coordinata honum Brendan Fraiser eða hvað hann nú heitir í einhverri mynd sem er verið að taka hér (allavegana einhver hluti af henni). Þannig að hann er alveg rosalega duglegur líka,, þannig að lífið bara gæti varla verið betra og ég gæti ekki verið ánægðari með það,,,(jú ef ég fengi vel launaða 8-5 vinnu frá og með kannski 18 okt )

En allavegana þetta er komið nóg í bili og ég bið að heilsa ykkur í bili.
Og Andri,, ég skulda þér allavegana ekki mikið af bjór,, því að þú bloggar alltaf svo lítið,, og þessi færsla mín dugar allavegana á við 3-4 blogg frá þér :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.09.2006 10:21:31 / daskvis

blogg blogg

æ þetta helvítis blogg,,,, er ekki búin að nenna að blogga neitt,,, en mun bæta úr því. Þannig að ég mun örugglega koma með eitthvað hérna inn á næstu dögum,, eða jafnvel um helgina,, það er aldrei að vita,,,,,, en þangað til þá,,, hafið það bara gott og bið að heilsa ykkur

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 02:16:12 / daskvis

varðandi Ameríkuferðina

Jamm,, ég skrifaði að ég ætlaði svo að setja inn ferðasöguna,,,,, gleymiði því,, ég nenni því ekki. Ef það er fólk sem vill heyra hana,, þá annaðhvort getur það komið í kaffi til mín eða hringt :) allavegana,, þetta er nefnilega svo mikið að mar nennir ekki að fara að skrifa þetta allt hérna,,,,, ekki nema það að ég er miklu brúnni og sætari en Valdi :) ,,,nei djók,, kannski ekki brúnni,, en most deffinatly sætari

anyhwo,,, over and out
Da Skvis

» 7 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 09:39:48 / daskvis

Jæja gott fólk,, komin heim aftur

komin aftur heim,, á eftir að skrifa svona brot af ferðasögunni,, en þetta var alveg geggjað gaman í alla staði og hefði varla getið verið betra,,, skrifa meira seinna

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 01:47:50 / daskvis

America here I come

Þá styttist í að mar fari í flugvélina,, stóru flugvélina,, og ótrúlegt en satt þá hef ég aldrei farið í flugleiða flugvél,, alltaf bara eitthvað leiguflug,, sem er náttúrulega snilld. Er búin að mest öllu núna eina sem ég á eftir að gera er að ryksuga þegar við förum og klára almennilega að pakka niður,, en ég verð að fara klára það því það eru bara nokkrar klst til stefnu, nánar tiltekið 14,5 klst. Ég er hérna bara í mestu makindum að drekka bjór og láta mér líða vel, ætla að fara í bað á eftir og solleis því ég þarf að gera doldið mikið á morgun. Ég þarf að klára að reikna launin, fara og borga tannsa, skutla múttu og fara í apótekið fyrir Ædísi því hún nennir ekki að fara í apótek í ameríku,,heheh, svo fer Valdi í bæinn að skila reikning og svo er bara að chilla held ég þangað til að við skutlum sætu skottunum mínum til Steinars um kl 2 og höldum þá af stað upp á flugvöll og svo er það bara America here I come,,,jibbý,,, er aðeins að stressast meira upp en ég á alveg örugglega eftir að lifa þetta af.
Anywho,, Skiljið eftir einhver falleg skilaboð til mín sem ég get lesið þegar ég kem heim,, því þá veit ég að það er einhver sem er að lesa þetta og mögulega að hugsa til okkar.
Ef flugvélin hrapar og ég dey,,, þá bara ég elska ykkur öll,, eða nánast öll,, og hitti ykkur í næsta lífi bara :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 12:52:18 / daskvis

tiltekt og kvíði

þá er mar búinn að taka allt húsið í gegn, skúra, bóna ryksuga og allt þess á milli. ég er að reyna að dreifa huganum því það styttist alveg ískyggilega mikið í að ég fari út,, þ.e.a.s. á morgun eða eftir nákvæmlega 27,5 klst. og ég er alveg að deyja úr stressi,, ég er nefnilega alveg skelfilega flughrædd. Ég fer nefnilega í tvær vélar á tveimur dögum og það er ekkert svakalega gaman. Allavegana,, þetta ætti svo sem allt að reddast því að ég er búin að verða mér út um nikótínplástra (takk Kristín) og svefntöflur (takk ónefndur aðili) og svo einhverjar jurta róandi töflur,, þannig að ég meika þetta vonandi,, já og svo verður Maggi að fljúga með okkur þannig að ég verð vonandi eitthvað rólegri. Á eftir að pakka allt niður,, bæði fyrir okkur og stelpurnar,, en ég geri það á eftir bara,, það er svo sem ekkert mikið sem þær fara með, nema þá kannsk dót því að það er víst til þvottavél á fleiri stöðum en hérna heima.
Allavegana er ég hérna heima bara og er að kvíða fyrir að fara en á sama tíma hlakka ég alveg geggjað til. Stelpurnar hafa gott af því að fá smá frí frá mér og ég frá þeim,, enda munu þær örugglega bara hafa það gott hjá Steinari og ömmunum,, og við höfum líka gott af því að fá smá frí frá þeim. En er farið að kvíða soldið fyrir líka því að ég hef aldrei farið svona lengi frá þeim.
Allavegna,, núna ætla ég að fara að leggja mig með litla dýrinu og ég kannski skrifa eitthvað smá hérna inn áður en ég fer á morgun,,,, já og ef ég gleymi því, þá ætla ég bara að óska Bjarka Fannari til hamingju með afmælið þann 4 júlí og óska mömmu hans og pabba til hamingju með guttann litla,, reyni að hringja í ykkur frá Orlando á afmælinu,, en lofa engu.
jæja,, leggja mig svo ég losni við stressið,, já og það bítur enginn í ykkur þó svo að þið kommentið eða kvittiðí gestabókina sko,, get alveg lofað því

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 16:05:58 / daskvis

Góð pæling

Vildir þú ekki stundum óska að þú gætir fari aftur í
tímann þegar........

Ákvarðanir voru teknar með því að nota
"Úllen dúllen doff" eða "Ugla sat á kvisti"?

Peningamál voru afgreidd af þeim sem var
bankastjórinn í Matador.

Hægt var að gleyma sér tímunum saman við að
blása á biðukollur og eltast við fiðrildi.

Það þótti ekkert athugavert við það að eiga tvo til
þrjá "bestu" vini.

Það að vera "gamall" átti við hvern þann sem  kominn
var yfir tvítugt.

Pabba tókst að láta þumalinn á sér hverfa og
birtast til skiptis.

Brennó þótti merkilegra en nokkur íþróttagrein.

Þeir sem voru "vopnaður" í skólanum voru þeir sem
voru með teygjubyssur.

Engin(n) var fallegri en mamma.

Pabbi var sterkasti maður í heimi.

Sár greru með einum kossi.

Fyrsti vetrarsnjórinn olli óendanlegri gleði.

Fimmtudagskvöldin voru "öðruvísi" af því að það var
ekkert sjónvarp og fólk eyddi meiri tíma í að tala saman.

Þú fékkst dót fyrir að vera dugleg(
ur ) hjá
tannlækninum.

Það vandræðalegasta sem gat komið fyrir þig var að
vera valinn
síðastur í brennóliðið.

Eldri systkini þín gátu kvalið þig endalaust, en
voru jafnframt fyrst til að vernda þig.

ABBA myndir voru verðmeiri en nokkur hlutabréf.

Það að snúa sér hring eftir hring eftir hring var
nóg til þess að fá klukkutíma hláturkast.

Loforð um að fá ís var nóg til þess að þú kláraðir
matinn þinn.

Ef þú kannast við meirihlutann af þessu, þá hefurðu
LIFAÐ!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 06:02:02 / daskvis

gleymdi

Já þetta með boltann á netinu,,, farið inn á www.viidoo.com og þar er player sem heitir tuv plater sem þið þurfið að dl-a. Svo er boltinn oftast sýndur á ESPN rásunum eða ABC rásinni. Ef það eru einhverjar spurningar,, þá endilega bara hafa samband.. Enjoy!!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 22:36:50 / daskvis

sólbað ??? nei sofa !!!

Jæja góða kvöldið allir saman. Þegar ég vaknaði í morgun,, þá var ég alveg svakalega glöð með það hvernig veður væri úti,, sól og blíða og ætlaði sko aldeilis að nota daginn í eitthvað skemmtilegt. En hvernig byrjar dagurinn,,hmm,,
Byrjaði á því að vakna um hálf 10 og fór út í apótek að kaupa mér munnangursmeðal,, (því ég fékk munnangur eftir þetta plast drasl sem var sett í kjaftinn á mér). Kom svo heim og makaði þessu í smettið á mér og þarð þar af leiðandi öll fjólublá og sælleg. Nennti svo ekki að byrja að taka til, þannig að ég dúllaðist bara smá með stelpunum og svo fór Elva að leggja sig um 1 leitið. Ég ákvað að leggja mig með henni þ´vi að hún mundi örugglega sofa til ca 2:30 og þá gætum við farið út að rölta með múttu. En nei,, við sváfum til kl 4 og ég var komin heim til múttu um hálf 5. Röltum um í klukkutíma og svo heim aftur. Þannig að það fór eitthvað ferlega lítið fyrir þessum degi hjá mér. Fattaði reyndar ekki fyrr en ég var á leiðinni heim að það hefði verið snilld að skella sér í sund,,,ARGH!!! svona er þetta,, mar er alltaf svo vitur eftir á.

Allavegana, tanndótið gekk rosalega vel. Hélt ég væri með tannkul í 4 neðri frammtönnunum en svo var ekki,, fékk bara einhvern helvítis verk og var alveg að deyja,, og þá er ég ekki að grínast. Þannig að mín fer að fá sér verkjatöflur og flottheit,, og það endar með því að frá kl 4-8:30 er ég búin að éta, 2 ibufen- 6 parkodin - 3parkodin forte og 2 treo. Það var ekkert að virka þannig að ég skellti í mig einu staupi af vodka,, já og fékk mér svo bara 3 glös af vodka í kók líka (stelpurnar gistu sko hjá pabba sínum) og þetta sló svona fínt á verkina,, og allt annað reyndar líka,, var orðin alveg gjörsamlega út úr kortinu,,heheh en það var bara gaman,, Valdi tók upp á video eitthvað bull sem ég var að tala og svo lét hann mig hlusta á það,,,,, fallega hvð mar getur nú verið fáranlegur,,heheh.
En allavegana,, ég er alveg ánægð með tennurnar,, mætti vera smá meiri munur,,en þetta er samt fínt,, en nei ég mundi ekki gera þetta aftur nema ég væri með það garenterað að ég yrði bara með morfín í æð (enda ekki með neinn sársaukaþröskuld þegar kemur að munni sko,, nánast fer að gráta þegar ég er deyfð hjá tannsa sko)

En núna er ég orðin alveg svakalega fín og solleis, er að fara aftur til tannsa á morgun og þá er hann að fara að rífa úr mér fyllingar og setja plast í staðinn og eitthvað solleis bull,, og svo fer Ásdís kl 3 líka til tannsa ( ekkert smá sem þessir tannsar eiga eftir að græða á mér,,heheh,, því ég á svo egtir að fara með Elvu í aðgerð í október)

Allavegana,, það eru núna bara 12 dagar þangað til við förum út og ég er farin að hlakka geggjað til, reyndar kvíða smá fyrir líka,, en tilhlökkunin er meiri eins og er.
Anyhúw cya later all og gn

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 00:27:11 / daskvis

Sýn og sérviska

Hey,, þið sem eruð að borga fyrir sýn til að fá að glápa á hm,, eruð óheppin að þurfa að sóa 15000 kalli í þetta þegar það er hægt að glápa á þetta frítt á netinu,,, múhahahahha

En gott fólk,,, ég er búin að vera að pæla smá. Eru þið með einhverja svona furðulega ávana / kæki eða jafnvel sérvisku? ég er nefnilega búin að vera að velta þessu doldið fyrir mér og er búin að komast að því að ég er bara helvíti furðuleg,,bwahahhaa,, snillingurinn ég,, en ég ætla að láta sumt hérna inn.

1. ef ég er að drekka úr glasi, þá drekk ég allann hringinn,, ss. drekk ekki af sama stað á glasinu tvisvar, nú svo þegar ég er búin að því, þá set ég það í uppþvottavélina / vaskinn því að það er skítugt ( er reyndar að reyna að venja mig af þessu og gengur sæmilega)

2. Klósettpappírinn þarf alltaf að snúa að mér,, ss. endinn á að vera út en ekki upp að veggnum. Ef ég er heima hjá einhverjum öðrum, þá sný ég honum við ef hann er ekki solleis og ég get pirrað mig yfir því ef að maðurinn minn og börnin skipta um rúllu og snúa henni ekki rétt

3. ég laga alltaf undirskriftarmotturnar í búðunum ef þær eru skakkar.

4. Ég er skíthrædd við hrossaflugur og dordingla 8eða hvernig sem það er nú skrifað)

5. Verð alltaf að sofna á maganum eða á hægri hliðinni

6. Ég er með talnaáráttu eða eitthvað solleis. Ég er alltaf að telja,, þá meina ég alltaf. Ég get talið sama/sömu hlutina oft og man ekki hvað ég taldi upp í mikið,, þanngi að ég get alltaf verið teljandi.

7. Ég þoli ekki ef einhver fær sopa af mínum drykk. Ekki einusinni börnin,, ekki ef þau slefa ofan í hann.

8. Þoli heldur ekki ef einhver fær hjá mér sopa t.d. af bjór í dós, og skilur eftir slef við opið (þarna í raufinni á milli),, fólkið á að sötra það í burtu. Sjálf set ég alltaf tunguna þarna meðfram svo að þetta gerist ekki hjá mér.

9. Ef ég slefa óvart eða eitthvað solleis,, þá get ég ekki sleikt útum og tekið það þannig í burtu,, það er ógeðslegt.

10. Get ekki drukkið fyrr en löngu eftir að ég bursta tennurnar.

11. Ég vil alltaf hafa tvennt af öllu, og ef ég er með t.d. kertastjaka á borðinu, þá verður hann að vera jafn langt frá báðum endum og jafn langt inn á borðið,, eiginlega svona spegilmynd

12. Þegar ég var lítil og var að fara út að leika mér í leikskólanum, þá þurfti ég ef ég var í munstraðri peysu að láta vettlingana má jafn langt upp á munstrið allann hringinn beggja meginn, þó svo að ég færi í úlpu yfir.

13. Ég var alltaf í sokkum og peysu í sama lit ( ég er að reyna að hætta þessu sjálf,, gengur mis vel,, er t.d. núna í gráum sokkum og gráum bol,,hehe,,, en ég geri þetta alltaf við stelpurnar mínar.)

14. Les blaðið afturábak, þ.e.a.s. byrja á bakhliðinni.

15. Er með áráttu fyrir því að setja drasl undir neglurnar á mér. eins og t.s. þar sem sænginni hennar Elvu er lokað,, þar kemur smá harður kanntur og hart horn,, ég treð því undir neglurnar á mér og þrýsti skinninu sem er uppvið neglurnar á hliðinni inn að nöglunum. Geri þetta líka við allt sem eru svona semi hörð horn, eins og á rassvörum á gallabuxum, innan á faldinum á gallabuxum, úlpukraga, skyrtukraga og samskeyti á veskjum svo að eitthvað sé nefnt. En það versta við þetta er, að ég geri þetta ekki bara á mér,, heldur á öðrum líka. Ég er t.d. ælltaf að nota stífa hornið á úlpunni hennar Ásdísar ef ég hjálpa henni í úlpuna, rassvasana á buxunum hans Valda þegar hann er í þeim, sængina hennar Elvu ef ég sit með hana, buxnaskálmina mína ef ég er í tölvunni eða glápa á video, svo tek ég stundum neglurnar á mömmu og treð undir mínar,,heheheh

Ég á örugglega alveg helling af fleirum svona skrítnum ávönum, sem betur fer held ég að fæstir taka eftir þeim. Nú og ef þið hafið tekið eftir einhverju af þessu eða einhverju öðru sem ég er ekki bún að nefna,, þá endilega commentið á það og látið mig vita :)

En jamm læt þetta duga í bili, er að hugsa um að fara að sofa í hausinn á mér bara bráðlega,, þannig að góða nótt gott fólk og bið að heilsa ykkur í bili.

» 6 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 11:27:31 / daskvis

Til Ameríku með ammælið

Shit hvað ég á eftir að skrifa marga daga,,, mar er alveg kominn bara helling í vanskil.Ætla samt bara að skrifa það merkilegasta hérna. Það byrjaði á afmælinu hennar Ásdísar Evu sem var 22 maí. Það heppnaðist alveg stór vel og voru ca 15 krakkar hérna í pizzu partýi (mega vika á Dominos), þetta heppnaðist líka svona vel því að Elva Dís var með múttu í rvk,, annars hefði þetta verið meira mál. Hún fékk fulllt að fallegum og skemmtilegum gjöfum,, og svo fékk hún 5000 kall í pening sem fer beint inn á bókina hennar. Hún var rosalega ánægð með þetta alltsaman og ég er fegin,, og vona að ég sleppi svona auðveldlega næst (það er algjör snilld að þurfa ekkert að baka,, bara bíða eftir krökkunum og panta svo pizzu,,hehe) en ég verð ekkert svona heppin í september þegar Elva á afmæli því að það þarf víst að baka fyrir hana,heheh. En þetta var allt saman fínt bara.
svo helgina eftir ss 27-28 maí þá var pabbahelgi og við vorum bara heima að chilla þá helgi,, á föstudeginum gláptum við á video og svo á laugardeginum fórum við í bæinn út að borða og fórum á Tapas og það var bara algjör snilld,, komum svo heim og spiluðum smá og svo var bara chillað.
Man eiginlega svo ekkert hvað ég var að gera,, ekki nema það að Valdi er búinn að vera að vinna alveg í 10-18 tíma á dag alla vikuna þar á eftir og ég því að upplifa það aftur hvernig er að vera einstæð móðir,,heheh.
Svo var skólinn að klárast hjá Ásdísi og hún fékk svona umsagnar blað í staðinn fyrir einkunna blað,, og hún er bara alveg þræl dugleg stelpan. Skólaslitin voru svo hjá henni 2 júní.
Mamma átti líka afmæli 2.júní er orðin 49 ára núna(til lukku með afmælið skvís) en hún var ekki heima til að við gætum kysst hana og knúsað,, hún fór nefnilega í húsbílaferðalag í Hvalfjörðinn,, en mar kíkir á hana í dag þegar hún er komin heim.
Við kíktum öll familían í rvk,, eða sko upp í Grafarvog,, á annað heimilið okkar og gistum þar. Á laugardeginum þá fórum ég, Ædís og Sigga í smáralindina að versla og komum svo heim til Ædísar og Ingós og grilluðum, spiluðum svo Texas hold´em og drukkum bjór,  fórum svo að sofa um hálf 5,, en nei,, þá vaknaði litla stýrið og ég var ekki sofnuð fyrr en um hálf 7 og komin svo framúr um hálf 10,,, shit hvað ég var þreytt,, það var alveg beond fáranlegt.
Komum svo heim í gær,, og ekki nóg með það að það var búið að lofa Signýju Sól að sofa,, þá tókum við írisi með okkur líka,, þannig að við erum núna as we speak með 4 litlar stelpur á heimilinu,,, og það er ekekrt svo slæmt,,, alveg eitthvað sem gæti vanist,,hehehe( já ég væri alveg til í að fá tvær stelpur í viðbót,, já eða tvo stráka,,, nei bara tvær stelpur eða stelpu og strák,,ekki tvo stráka,,hehe)
Núna erum við Valdi orðin spennt að fara út enda ekki nema 28 dagar í það,,jibbý. Erum búin að vera að skoða allskonar bátaleigur og solleis á netinu til að við höfum þann möguleika þegar við förum til Bahamas,, til að gera ferðast á milli eyjanna,, ef það veit einhver um sniðuga solleis leigu eða á reynslusögu af solleis,, þá endilega látið mig vita. Ég er komin með svona spenningarhnút í magann þegar ég hugsa um þetta,, en svo kemur líka annað slagið kvíðahnúturinn yfir því að vera að fara í rúmar 3 vikur út án barnanna,,, en þetta reddast allt saman,, vonandi. Þarf að fara að kaupa mér nikótín plástra og stauta til að meika flugvélarnar allar og svo verða mér úti um róandi töflur og svefntöflur,, það hlýtur að reddast.
 En jæja,, ég hef litið annað að segja eins og er,, nema bara cya all later

» 6 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
23. febrúar 2012